Innlent

Yfir tíu óhöpp á höfuðborgarsvæðinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bíllinn rakst á girðingu.
Bíllinn rakst á girðingu. mynd/ egill
Betur fór en á horfðist á gatnamótum Miklubrautar og Hringbrautar nú undir kvöld þegar bíll rann á hálku og lenti utan í girðingu. Sem betur fer slasaðist enginn við áreksturinn. Talsverð hálka var á götum borgarinnar í dag og höfðu um tíu tilkynningar borist um hálkuóhöpp klukkan sex í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Varðstjóri hjá sjúkraliðinu segir að enginn hafi verið fluttur með sjúkrabíl á slysavarðstofu vegna þessara óhappa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×