Innlent

Telpa fannst yfirgefin á akri eftir skýstrókana

Samkvæmt yfirlækni Barnaspítalans í Louisville fórst fjölskylda stúlkunnar í skýstrókunum.
Samkvæmt yfirlækni Barnaspítalans í Louisville fórst fjölskylda stúlkunnar í skýstrókunum. mynd/AFP
Björgunarmenn í Indiana í Bandaríkjunum fundu tíu ára gamla stúlku yfirgefna á akri, rúmum 16 kílómetrum frá heimili sínu sem eyðilagðist þegar skýstrókar gengu yfir ríkið.

Stúlkan var mikið slösuð og flutt á sjúkrahúsið í Louisville. Ekki er vitað af hverju stúlkan var akrinum eða hvernig hún komst þangað.

Samkvæmt yfirlækni Barnaspítalans í Louisville fórst fjölskylda stúlkunnar í skýstrókunum.

Að minnsta kosti 37 létust þegar skýstrókarnir gengu yfir miðríki Bandaríkjanna í vikunni. Þá létust 18 manns í Kentucky og 14 í Indiana.

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur haft samband við ríkisstjóra á hamfarasvæðunum og vottað þeim samúð sína. Hann sagði að Almannavarnir Bandaríkjanna væru reiðubúnar að aðstoða við frágang og uppbyggingu á svæðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×