Leoncie með langþráða tónleika á Íslandi 9. janúar 2012 22:00 „
Ég hlakka mikið til að koma fram á Íslandi," segir indverska prinsessan Leoncie. Leoncie er væntanleg til landsins og kemur fram á Gauki á Stöng laugardaginn 28. janúar. Sjö ár eru liðin frá því að Leoncie flutti til Bretlands og hefur hún síðan þá ekki komið fram á Íslandi. Í viðtali við Fréttablaðið segist hún ekki óttast að það hafi fækkað í aðdáendahópnum hér á landi. „Ég á hiklaust fjölmarga aðdáendur á Íslandi vegna þess að lögin mín eru upplífgandi og jákvæð," segir hún. „Nýju lögin mín eru hvert öðru fyndnara og jákvæðara. Ég nýt þess að koma fólki til að hlæja. Ég elska að sjá fólk brosa. Það er niðurdrepandi að horfa framan í fúlt fólk. Hvers vegna í veröldinni ætti fólk að vera fúlt og leiðinlegt? Allir aðdáendurnir mínir eru hamingjusamt fólk. Húrra!" Leoncie hyggst flytja mörg ný lög – lög sem hún fór alla leið til Kanada til að taka upp. „Ég mun svo pottþétt flytja klassísk lög eins og Ást á pöbbnum og fleiri," segir hún. Hún segist hafa komið víða fram undanfarið, meðal annars í heimalandi sínu Indlandi, Kanada og Bandaríkjunum. „Ég kem fram á risastórum vel borguðum viðburðum á vegum stórfyrirtækja," segir hún. Dvöl Leoncie á Íslandi verður ekki löng í þetta skipti, en hún segist vera mikið bókuð á næstunni og bætir við að eftirspurnin sé mikil á meðal skólabarna í Kanada og Bandaríkjunum, sem vilja að hún komi fram á söngkeppnum. „Hversu yndislegt er það? Ég elska það. Þau eru að minnsta kosti að gera eitthvað jákvætt og gott í lífinu, í staðinn fyrir að áreita fólk eins og hatursfullu uppvakningarnir í Sandgerði fyrir sjö árum." Hún ætlar jafnvel að taka upp ný tónlistarmyndbönd hér á landi ásamt því að skoða fasteignamarkaðinn, en hún hyggst festa kaup á húsi hér á landi í náinni framtíð. „Ég á þegar þorp á Indlandi þar sem hamingjusöm börn syngja lögin mín," segir Leoncie. Leoncie lofar einstökum tónleikum í lok janúar. „Ég er ánægð með þá staðreynd að margt fólk sér lífið með sömu augum og ég. Hvort sem ég fæ spilun í útvarpi eða ekki, heimsfrægð eða ekki, stóra samninga eða ekki. Ég er í þessum bransa til að vera," segir Leoncie og sendir þjóðinni áramótakveðjur. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira