Ívar spenntur fyrir Óskarnum - Allt í beinni á Stöð 2 í kvöld 26. febrúar 2012 13:30 Ívar Guðmundsson er spenntur fyrir Óskarnum. mynd/Villi „
Maður er búinn að gera þetta í nokkur ár, þetta verður bara skemmtileg upplifun," segir Ívar Guðmundsson útvarpsmaður á Bylgjunni. Óskarsverðlaunaafhendingin fer fram í kvöld og mun Ívar lýsa beint frá hátíðinni á Stöð 2 ásamt Skarphéðni Guðmundssyni. Ívar segist hafa fyrst lýst frá Óskarnum á Stöð 2 árið 1996 eða 1997, en hafi þó ekki verið á hverju ári síðan þá. „Þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Mér finnst nú skemmtilegra að horfa á hátíðina í beinni en að horfa á hana á upptöku. Þá er oft búið að stytta hana og klippa út skemmtileg augnablik," segir Ívar. Óskarinn byrjar klukkan hálf tólf, en áður en verðlaunaafhendingin sjálf byrjar verður fylgst með rauða dreglinum. „Það er aðallega skemmtilegt að sjá viðtölin við stjörnunar. Ég er nú ekkert að missa mig yfir kjólunum en það er þó mest rætt um það. Það er greinilegt að þetta skiptir miklu máli því ef þú lítur ekki vel út, þá er liðið hakkað í sig daginn eftir í sjónvarpinu," segir Ívar. Eins og áður segir hefur Ívar lýst nokkrum Óskarsverðlauanahátíðum. Hann segir að sú eftirminnilegasta sé frá árinu 1999 þegar Robert Benigni var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir myndina Life is beautiful. „Hann var ekkert að leyna ánægju sinni með þetta ótrúlega afrek og stóð upp á stólum." Ívari til halds og traust verður Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrástjóri Stöðvar 2. „Hann var á Mogganum í gamla daga og hefur skrifað mikið um kvikmyndir og veit ótrúlega mikið um kvikmyndir," segir hann. Hátíðin hefst klukkan 23:40 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira