Sport

Pistorius fékk loksins gull

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Oscar Pistorius fagnaði í kvöld sigri í 400 m hlaupi karla í fötlunarflokki T44 á Ólympíumóti fatlaðra í London í kvöld.

Pistorius hafði ekki tekist að vinna gull í 100 og 200 m hlaupunum en fyrirfram var hann talinn sigurstranglegastur í þeim.

Hann kom í mark á 46,68 sekúndum í dag og var næstum fjórum sekúndum á undan næsta manni. Alan Olivera frá Brasilíu, sem vann hann óvænt í 200 m hlaupi, endaði í fjórða sæti.

400 m hlaup er sterkasta grein Pistorius og fyrr í sumar varð hann fyrsti fatlaði íþróttamaðurinn sem keppir með ófötluðum á Ólympíuleikum þegar hann keppti í 400 m hlaupi og 4x400 m boðhlaupi.

Hlaupið í kvöld var síðasta greinin á Ólympíuleikvanginum í London. Mótinu verður slitið annað kvöld en aðeins á eftir að keppa til úrslita í örfáum greinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×