Innlent

Fengu hugmyndina að Geimgæðingum á barnum - áhuginn gríðarlegur

„Hugmyndin kviknaði svona eiginlega á barnum," segir Þorvaldur S. Gunnarsson, leikstjóri Space Stallions sem á þriðja hundrað þúsund manns hafa barið augum á vefnum YouTube. Það er óhætt að segja að myndbandið, sem var útskrifaverkefni Þorvalds og sex manna hóps sem samanstendur af Íslendingum og Dönum, hafa slegið í gegn.

Þannig hafa Bandaríkjamenn verið mjög áhugasamir um myndbandið að sögn Þorvalds, og margir haft samband að auki og óskað eftir fundi með hópnum um framtíðarmöguleika hugmyndarinnar.

„Við verðum bara að sjá hvernig þetta fer," segir Þorvaldur varfærinn. Hann segir vikuna eftir að myndbandið fór á vefinn hafa verið hraða og skemmtilega. Það er ljóst að áhuginn er gríðarlegur.

Aðspurður um myndbandið sjálft segir Þorvaldur að teiknimyndin sé eiginlega óður og skopstæling á sama tíma. „Maður ólst upp við svona teiknimyndir í gamla daga. Og auðvitað elskaði maður þær," segir Þorvaldur og bætir við: „Svo þegar maður er orðinn fullorðinn og horfir á þetta þá sér maður náttúrulega fáránleikann."

Teiknimyndin var útskriftaverkefni hópsins í skólanum Animation Workshop. Þorvaldur útskrifaðist með næst hæstu einkunnina í skólanum. Hann fékk tíu. Sá sem hlaut hæstu einkunn fékk tólf.

Þorvaldur lætur vel af skólanum sem hann segir vera bæði skemmtilegan og vel tengdan við teiknimyndaiðnaðinn, en stór nöfn úr þeim heimi flytja meðal annars fyrirlestra í skólanum. Þorvaldur segir að samkvæmt könnunum þá séu nemendur skólans þeir hamingjusömustu í menntakerfinu í Danmörku.

Þorvaldur segir drauminn að geta unnið á sviði teiknimyndalistarinnar og þá helst á eigin forsendum.

Aðrir Íslendingar sem stóðu að verkefninu voru Ágúst Kristinsson, sem var listrænn stjórnandi og Arna Snæbjörnsdóttir, sem var lead animator. Það er svo Friðfinnur Oculus Sigurðsson sem sér um tónlistina.

Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Geimgæðingar íslenskra listamanna slá í gegn á YouTube

Útskriftaverkefni nokkurra Íslendinga í danska skólanum Animation Workshop í Viborg í Danmörku fer nú sigurför á YouTube. Þannig hafa hátt í þrjú hundruð þúsund manns horft á myndbandið frá því það var sett inn í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×