Sport

Yfir þrettán þúsund í fyrsta sinn

Það var nóg af fólki í Lækjargötunni þegar hlaupararnir voru ræstir af stað í 29. Reykjavíkurmaraþonið á laugardaginn en það var enginn þeirra svikinn af því að spretta úr spori í blíðunni.
Það var nóg af fólki í Lækjargötunni þegar hlaupararnir voru ræstir af stað í 29. Reykjavíkurmaraþonið á laugardaginn en það var enginn þeirra svikinn af því að spretta úr spori í blíðunni. Fréttablaðið/daníel
Reykjavíkur-maraþon Íslandsbanka tókst frábærlega og aldrei hafa fleiri verið með en í blíðunni á laugardaginn. Alls sprettu 13.410 hlauparar úr spori í sex vegalengdum eða tæplega þúsund fleiri en þegar gamla metið var sett í fyrra. Metþátttaka var einnig í öllum fjórum keppnisvegalengdunum; maraþoni (806), hálfmaraþoni (2004), í 10 km hlaupi (5.177) og í boðhlaupum (118). Í þriggja kílómetra skemmtiskokki voru skráðir 1.928 og í Latabæjarhlaup voru skráð til leiks 3.377 börn.

Arnar Pétursson varði Íslandsmeistaratitil sinn þegar hann sigraði í maraþoni karla annað árið í röð. Tími Arnars í ár var 2:41:06 klukkutímar og bætti hann tíma sinn frá því í fyrra um rúmar þrjár mínútur. Arnar hafði betur eftir harða keppni við Pólverjann Piotr Karolczak. Sigurvegari í maraþoni kvenna var Mary Brown en hún hljóp á tímanum 3:04:03. Íslandsmeistari í maraþoni í kvennaflokki varð aftur á móti Sigríður Björg Einarsdóttir sem kom í mark á tímanum 3:25:46.

Í hálfmaraþoni sigraði Þorbergur Ingi Jónsson þegar hann kom í mark á tímanum 1:09:23. Þorbergur sigraði einnig í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra en þá í 10 km hlaupinu. Í kvennaflokki sigraði Martha Ernstdóttir á tímanum 1:23:00 en hún á brautarmetið í hálfmaraþoni, 1:11:40, sem hún setti árið 1996. Tími Mörthu í dag er sá næstbesti í hennar aldursflokki, 40-49 ára, en besta tímann í þeim flokki á Martha einnig, 1:20:12 síðan 2005.

Sigurvegarar í 10 km hlaupinu voru þau Fríða Rún Þórðar dóttir og Björn Margeirsson sem einnig voru krýndir sigurvegarar í mótaröð Powerade-sumarhlaupanna en Reykjavíkurmaraþonið var fimmta og síðasta hlaupið í mótaröðinni þetta sumarið.

Í boðhlaupinu sigraði liðið Sveittir og þreyttir en það skipa þeir Óskar Ragnar Jakobsson, Daníel Jakobsson, Bergþór Ólafsson og Jósep Magnússon. Þetta er í þriðja sinn sem þessir félagar sigra í boðhlaupinu og hafa þeir bætt tíma sinn um tæpar fimm mínútur síðan í fyrra, en samanlagður tími þeirra í ár var 2:42:42.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×