Kári Steinn: Mjög sáttur við árangurinn | Fær sér steik í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 12. ágúst 2012 13:40 Mynd/Valli „
Þetta eru Ólympíuleikar. Þá er það eina sem skiptir máli í hvaða sæti maður lendir og ég er mjög ánægður með að vera í 42. sæti,“ sagði maraþonhlauparinn Kári Steinn Karlsson við Vísi skömmu eftir að hann kom í mark í morgun. Kári Steinn hljóp maraþonið á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum. Óhætt er að segja að um mjög góðan árangur er að ræða, enda innan við ár síðan hann hljóp maraþon í fyrsta sinn. „Ég ætlaði að stefna á topp 30 en það var skot út í loftið. Ég vissi ekki að það yrðu svona margir hlauparar og margir svona sterkir,“ sagði hann. Íslandsmet Kára Steins er 2.17:12 klst en aðeins sex hlauparar af þeim 105 sem tóku þátt í dag áttu lakari tíma. Segir það mikið um afrek Kára Steins í dag. „Eftir að ég sá keppendalistann hugsaði ég með mér að vera ofar en í 90. sæti og að allt fyrir ofan 80. sæti væri plús.“ „Tíminn er svo sem ekkert til að hrópa hátt húrra fyrir en ég er sérstaklega ánægður með sætið,“ sagði Kári Steinn en sagði þó að það hefði komið honum á óvart hversu hæg brautin var. „Ég fór skynsamlega af stað og hélt að ég væri að fara mun hraðar en millitímarnir á 5 og 10 km sýndu. Það var hálfgert sjokk að sjá þá,“ sagði hann. „En brautin var líka hægari en ég hélt. Það var mikið af beygjum, brekkum og ósléttu undirlagi. Það braut upp taktinn hjá mér.“ Kári Steinn er hvergi nærri hættur og stefnir enn lengra á næstu Ólympíuleikum. En nú tekur við hvíld hjá honum. „Ég ætla að hugsa sem minnst um hlaup næstu 3-4 vikurnar og taka því rólega. Svo fæ ég mér steik í kvöld enda búinn að fá nóg af kolvetnunum.“
Tengdar fréttir Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum. 12. ágúst 2012 09:29 Mest lesið Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Flagg fer til Dallas Körfubolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Fleiri fréttir Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Flagg fer til Dallas Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Lallana leggur skóna á hilluna Sjá meira
Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum. 12. ágúst 2012 09:29