Sport

Kári Steinn: Mjög sáttur við árangurinn | Fær sér steik í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
„Þetta eru Ólympíuleikar. Þá er það eina sem skiptir máli í hvaða sæti maður lendir og ég er mjög ánægður með að vera í 42. sæti,“ sagði maraþonhlauparinn Kári Steinn Karlsson við Vísi skömmu eftir að hann kom í mark í morgun.

Kári Steinn hljóp maraþonið á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum. Óhætt er að segja að um mjög góðan árangur er að ræða, enda innan við ár síðan hann hljóp maraþon í fyrsta sinn.

„Ég ætlaði að stefna á topp 30 en það var skot út í loftið. Ég vissi ekki að það yrðu svona margir hlauparar og margir svona sterkir,“ sagði hann.

Íslandsmet Kára Steins er 2.17:12 klst en aðeins sex hlauparar af þeim 105 sem tóku þátt í dag áttu lakari tíma. Segir það mikið um afrek Kára Steins í dag.

„Eftir að ég sá keppendalistann hugsaði ég með mér að vera ofar en í 90. sæti og að allt fyrir ofan 80. sæti væri plús.“

„Tíminn er svo sem ekkert til að hrópa hátt húrra fyrir en ég er sérstaklega ánægður með sætið,“ sagði Kári Steinn en sagði þó að það hefði komið honum á óvart hversu hæg brautin var.

„Ég fór skynsamlega af stað og hélt að ég væri að fara mun hraðar en millitímarnir á 5 og 10 km sýndu. Það var hálfgert sjokk að sjá þá,“ sagði hann.

„En brautin var líka hægari en ég hélt. Það var mikið af beygjum, brekkum og ósléttu undirlagi. Það braut upp taktinn hjá mér.“

Kári Steinn er hvergi nærri hættur og stefnir enn lengra á næstu Ólympíuleikum. En nú tekur við hvíld hjá honum.

„Ég ætla að hugsa sem minnst um hlaup næstu 3-4 vikurnar og taka því rólega. Svo fæ ég mér steik í kvöld enda búinn að fá nóg af kolvetnunum.“


Tengdar fréttir

Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla

Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×