Sport

Vítaspyrnuklúður ársins í Austurríki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Boltastrákarnir á Red Bull Arena eru líklega ennþá að leita að boltanum sem Jonathan Soriano, leikmaður Red Bull Salzburg, spyrnti yfir mark Rapid Vínar í deildarleik í gær.

Tveimur mörkum undir og tíu mínútum fyrir leikslok fengu heimamenn vítaspyrnu. Soriano steig á punktinn en líklegt er að ráðleggingin „halla sér yfir boltann" hafi hljómað í hausum einhverra áhorfenda.

Leiknum lauk með 2-0 tapi Salzburg en vítaspyrnuna hörmulegu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×