Sport

Kærasta Zlatans rænd í París

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Nordicphotos/getty
Lífið hjá Zlatan Ibrahimovic og fjölskyldu byrjar ekki vel í Parísarborg en Helena Seger, betur þekkt sem kærasta Zlatans, var á dögunum rænd á götum borgarinnar.

Fréttir herma að Seger hafi verið að versla í borginni án Zlatan, þegar tveir menn réðust að henni og rændu af henni veskinu sem innihélt að hennar sögn, rúmlega 700 þúsund íslenskar krónur.

Zlatan sem nýverið samdi við PSG ætti þó að eiga efni á þessu skyndilega peningatapi fjölskyldunnar enda á himinháum launum hjá liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×