Sport

Ásdís: Svekkt í kvöld en glöð á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásdís horfir á eftir spjótinu í kvöld.
Ásdís horfir á eftir spjótinu í kvöld. Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir segir að kast upp á 59,08 m sé góður árangur á sinn mælikvarða. Hún hafnaði í ellefta sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna á Ólympíuleikunum í kvöld.

Íslandsmet hennar í greininni er 62,77 m og var sett í undankeppninni á þriðjudaginn. Það kast hefði dugað henni í sjötta sætið í kvöld.

„Ég get ekki verið annað en ánægð með að vera í úrslitum á Ólympíuleikum og enda í ellefta sæti. Að sjálfsögðu er þetta pínu svekkjandi því ég ætlaði mér meira. Ég er keppnismanneskja og það er það sem kom mér hingað," sagði hún við Vísi í kvöld.

„Ég verð svekkt í kvöld en glöð á morgun. Þetta var samt alls ekki lélegt, þó svo að ég hafi verið kasta 62,77 m fyrir tveimur dögum síðan."

Henni leið vel í aðdraganda keppninnar í kvöld, en það var mikið um að vera á Ólympíuleikvanginum. Úrslitin í 200 m hlaupi fóru fram nokkrum mínútum áður en Ásdís byrjaði að keppa og fyrir fyrsta kast hennar þurfti að gera hlé á keppninni til að klára verðlaunaafhendingu í 800 m hlaupi karla.

„Þetta hafði engin áhrif. Svona lagað getur gerst. Ég var undir það búin að Bolt og félagar væru að taka sigurhringinn sinn og að það væru læti í kringum það. En þetta er allt hlutir sem maður getur ekki stjórnað og það þýðir ekki að láta það hafa áhrif á sig."

Ásdís segir að undirbúningurinn hefði gengið vel og að hún hefði haft á tilfinningunni að hún myndi kasta langt.

„Ég var að fíla mig mjög vel. Ég var einbeitt og hélt að ég myndi kasta langt. Svo í fyrsta kastinu var ég aðeins of rög og keyrði ekki í það af nógu miklum krafti."

Hún segist hafa klikkað á tækninni í öðru kastinu en að þriðja kastið hefði í raun verið hennar besta tilraun.

„Ég var alveg brjáluð og ætlaði að negla á það. Það var líka rosalega gott kast og betra en á þriðjudaginn. En ég reif aðeins í það og þá reis það of hátt upp. Svona er þessi íþrótt - maður þarf smá heppni með sér."

Hún fann þó ekki fyrir stressi í kvöld. „Ég var stressaðri fyrir undankeppnina því þetta er svo viðkvæm grein og svo margt sem getur brugðist. En í kvöld var ég búin að sanna mig og hafði því engu að tapa en allt að vinna. Ég ætlaði að kasta vel og hafa ótrúlega gaman að þessu. Ég gerði það."


Tengdar fréttir

Ásdís í 11. sæti í úrslitum spjótkast kvenna á ÓL

Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum spjótkastsins á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Ásdís vantaði rúman einn og hálfan metra til á að komast í hóp þeirra átta sem fengu að kasta þrjú köst til viðbótar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×