Innlent

Má heita Kvikkfix

Kvikkfix er í lagi.
Kvikkfix er í lagi.
Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að sýkna fyrirtækið Nýir Tímar ehf., af því að nota nafnið Kvikkfix í heimildaleysi.

Það var fyrirtækið Kvikk sem stefndi hinum fyrrnefndu en bæði fyrirtækin vinna á vettvangi bílaviðgerða.

Sá sem stefndi hafði notað nafnið Kvikk þjónustan um árabil, eða frá árinu 1992, en Kvikkfix var stofnað árið 2008.

Vildi stefnandinn meina að of nærri sér væri höggvið þar sem bæði sé mikil orðlíking með merkjunum og þjónustulíkingin væri alger, þar af leiðandi væri hætta á að villst yrði á auðkennum hans og auðkennum Kvikkfix.

Orðið „kvikk" er íslenskun á enska orðinu „quick". Merking þess orðs samkvæmt orðabókum er hraður, röskur, fljótur, snöggur, snar eða kvikur. Segja má að orðið kvikk hafi öðlast þessa merkingu í daglegu tali, þó það sé ekki að finna í íslenskri orðabók.

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að orðið „kvikk" væri of almenns eðlis og hefði ekki nægjanlegt sérkenni til skráningar sem vörumerki, heldur væri öllum heimil notkun þess.

Undir það tók Hæstiréttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×