Innlent

Skíðaveður í Skálafelli

Frá Skálafelli.
Frá Skálafelli. mynd/JMG
Þrátt fyrir slæmt veður í gær og í nótt er bresta á með mikilli blíðu í Skálafelli. Að sögn umsjónarmanns svæðisins var svæðið unnið í alla nótt og er fínt færi og nægur snjór. Þar er hægviðri suðvestan tveir til þrír metrar á sekúndu.

Allar lyfturnar fjórar eru opnar en opið er frá klukkan tíu til fimm í dag. Þá er skíðasvæðið á Siglufirði opið til klukkan fjögur en einnig er stefnt á opnun í Bláfjöllum klukkan tólf á hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×