Innlent

Líðan mannsins óbreytt

Líðan mannsins sem bjargað var úr íbúð í Reykjavík á föstudaginn er óbreytt. Eldur kom upp í íbúð mannsins í Tunguseli.

Vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítalans sagði að manninum væri enn haldið sofandi í öndunarvél.

Maðurinn var meðvitundarlaus þegar slökkviliðsmenn björguðu honum út úr íbúðinni aðfaranótt föstudags. Mikill eldur hafði komið upp í íbúðinni og gekk slökkvistarf vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×