Innlent

Pútín kosinn forseti Rússlands

Samkvæmt fyrstu útgönguspám mun Vladimír Pútín verða næsti forseti Rússlands. Pútín mun því á ný sitja í stóli forseta Rússlands en hann gegndi embættinu frá árinu 2000 til 2008.

Útgönguspár benda til þess að Pútín hafi hlotið 62% atkvæða. Helsti keppinautur Pútíns, Gennady Zyuganoc, hlaut 18%. Það verður því ekki þörf á annarri lotu kosninga til að skera úr um hver verði kosinn í embættið.

Yfirvöld í Rússlandi segja að kjörsókn hafi verið mun betri en í forsetakosningunum árið 2008.

Þúsundir stuðningsmanna Pútíns veifa nú Rússneska fánanum fyrir utan Kreml í Moskvu.

Ekki eru þó ekki sáttir með niðurstöður kosninganna. Háværar ásakanir um kosningasvindl hafa borist frá andspyrnuhópum og er því haldið fram að margir hafi kosið oftar en einu sinni.

Boðað hefur verið til mótmæla í miðborg Moskvu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×