Flokkspólitísk rammaáætlun lifir ekki af ríkisstjórnina Kristján Már Unnarsson skrifar 8. mars 2012 19:20
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að rammaáætlun muni ekki lifa af þessa ríkisstjórn ef niðurstaðan verði flokkspólitísk. Forstjóri álversins í Straumsvík talar um pólitískan skollaleik. Rammaáætlun, sem ætlað er að skapa varanlega sátt um hvar megi virkja og hvað eigi að friða, bar á góma á ráðstefnu sem Verkfræðingafélag Íslands stóð fyrir í dag, um framtíðarnýtingu orkuauðlinda á Íslandi, í tilefni af eitthundrað ára afmæli félagsins. Dregist hefur vikum saman að áætlunin birtist á Alþingi vegna átaka innan stjórnarflokkanna og voru þátttakendur í pallborðsumræðum spurðir hvort ekki væri hætta á því að rammaáætlunin yrði marklaust plagg, þegar hún bærist loks til Alþingis, ef flokkun virkjanakosta yrði breytt af pólitíkusum, sem virtu að vettugi hið faglega mat. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, sagði það frekar súrt í broti, eftir alla þessa vinnu, ef þetta lenti í einhverjum farvegi í lokin, sem gerði það að verkum að þetta plagg yrði ekki eins mikils virði eins og það stefndi í með faglegu vinnunni. Horfa yrði til miklu lengri tíma en svo að hægt yrði að láta pólitískan skollaleik ráða. Forstjóri Landsvirkjunar sagði slæmt ef þetta yrði flokkspólitísk ákvörðun. Til þess að rammaáætlun virkaði hefði þurft að koma út úr þessu breið sátt og helst þvert á flokka, sem myndi lifa af ríkisstjórnir. „Ef þetta verður mjög flokkspólitískt, og kannski stjórnarflokkapólitískt, þá er hætt við því að þetta verði bara ónýtt um leið og ný stjórn kemur til valda," sagði Hörður Arnarson.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira