Innlent

Bílar fóru út af veginum í Hveradalabrekku

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Selfossstrætó fór út af veginum í morgun.
Selfossstrætó fór út af veginum í morgun. mynd/ kh.
Að minnsta kosti tveir bílar hafa runnið út af veginum í Hveradalabrekku í morgun vegna hálku og éljagangs. Hálka er víða á Suðurlandi, en auk Hellisheiði eru hálkublettir í Þrengslum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er einnig hálka á Lyngdalsheiði og á efri hluta Biskupstungnabrautar en annars víða hálkublettir í uppsveitum Suðurlands. Snjóþekja er á Sólheimasandi og austur að Vík í Mýrdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×