Innlent

Þjófur reyndi flótta frá lögreglunni á Selfossi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók ungan mann í nótt, eftir að hann hafði farið inn í fjóra ólæsta bíla í leit að einhverjum verðmætum.

Þegar lögreglumenn nálguðust vettvang, samkvæmt ábendingu vitnis, tók hann til fótanna, en þeir voru fljótir að hlaupa hann uppi.

Engin verðmæti fundust á honum utan ein lyklakippa, sem hann sagðist langa til að eiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×