Ódýrast að leigja á Norðurlandi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 24. febrúar 2012 19:30
Leiga á hundrað fermetra íbúð í Reykjavík getur verið ríflega tvöfalt dýrari en leiga á sambærilegri íbúð á Norðurlandi. Nú er hægt að nálgast upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu allt frá janúar í fyrra til dagsins í dag en á þessum tíma hefur leiguverð hækkað að meðaltali um ellefu prósent. Tölurnar byggjast á þinglýstum leigusamningum og gefa þar með ágæta vísbendingu um stöðu markaðarins. Leigan er áberandi dýrust miðsvæðis í Reykjavík en hún hljóðar upp á rúmar 167 þúsund krónur. Hún lækkar um tæpar sautján þúsund krónur þegar við færum okkur austar en leigan á þessu svæði í Reykjavík er nánast á pari við leiguna í Kópavogi. Sá sem sækist eftir að leigja í Breiðholti gæti átt von á að greiða tæplega 150 þúsund krónur fyrir sína veru en hann myndi þó greiða tæplega sjöþúsund krónum minna fyrir leigu á íbúð í Garðabær, Hafnarfirði eða á Álftanesi. Enn ódýrara er að leigja í Grafarvogi, Grafarholti, Árbænum, Norðlingaholti og Úlfarsárdalnum eða 138 þúsund og á Kjalarnesi og Mosfellsbæ hljóðar leigan upp á rúmar 112 þúsund krónur. Líkt og við var að búast lækkar leigan þegar farið er út fyrir höfuðborgarsvæðið. Leigan á Suðurnesjum og Akureyri er svipuð, um hundraðþúsund. Þá er leigan á Vestur- og Suðurlandi á sama róli, rúmlega 95 þúsund. Hún er þó aðeins lægri á Vestfjörðum eða rúmlega 90 þúsund en langhagstæðast er að leigja íbúð á Norðurlandi, en leigan þar hljóðar upp á rúmlega 76 þúsund krónur. Munurinn á dýrustu og ódýrustu leigunni er þá sumsé 120 prósent. Frekari upplýsingar um leiguverð má finna hér.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira