Innlent

Kom sér sjálfur á slysadeild handleggs- og fótbrotinn

Piltinum var hent út í Mjóddinni en lögreglan rannsakar nú málið.
Piltinum var hent út í Mjóddinni en lögreglan rannsakar nú málið.
Rétt fyrir klukkan eitt í nótt var Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um líkamsárás í Skútuhrauni. Þar mun hafa verið ráðist á pilt, hann laminn illa, troðið ofaní skott á bifreið og hent út í Mjóddinni. Hann mun hafa komið sér sjálfur á slysadeild þrátt fyrir að vera bæði handleggs og fótbrotinn auk annarra áverka. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×