Innlent

Sakaður um að hafa lamið sambýliskonu sína

mynd úr safni
Lögregla var kölluð að Hrafnhólum í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun vegna heimilsofbeldis. Þar var karlmaður handtekinn, færður útaf heimili sínu og vistaður í fangageymslu. Hann er sakaður um að hafa lamið sambýliskonu sína. Á heimilinu var 12 ára barn.

Alls voru áttatíu og sex mál bókuð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan sjö í gærkvöldi og til morguns. Flest voru útköllin vegna hávaðakvartana. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur og einn vegna aksturs undir áhrifum vímuefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×