Sextán ára stúlku nauðgað af nokkrum mönnum í húsasundi 26. febrúar 2012 18:33
Sextán ára stúlka leitaði undir morgun á neyðarmóttökuna á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa greint lögreglu frá því að henni hafi verið nauðgað af nokkrum mönnum í miðbæ Reykjavíkur. Barnaverndarnefnd hefur verið tilkynnt um málið. Lögreglan fékk tilkynningu um málið rúmlega fimm í morgun. Stúlkan hafði samkvæmt heimildum fréttastofu verið með vinkonu að skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur. Hún kom heim til sín í miklu áfalli og greindi foreldrum sínum frá því sem gerst hafði. Þeir höfðu strax samband við neyðarlínuna og var lögreglan send á staðinn. Stúlkan greindi þá frá því að henni hafi verið nauðgað af nokkrum mönnum í húsasundi í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglumennirnir fóru með hana á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítalanum í Fossvogi. Þar var hún skoðuð og hlúð að henni. Sökum ungs aldurs stúlkunnar, en hún er aðeins sextán ára, var barnaverndarnefnd tilkynnt um málið. Fréttastofu hefur ekki reynst unnt að afla sér upplýsinga um það hvernig rannsókn málsins gengur og hvort að einhver hafi verið handtekinn. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki náðst í yfirmenn deildarinnar í dag. Tvær aðrar konur leituðu á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítalanum um helgina.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira