Austurríska leiðin nýtt einu sinni - 174 dvöldu hjá Kvennaathvarfinu 27. febrúar 2012 11:11 Heimilisofbeldi. Myndin er sviðsett.
Árið 2011 var, eins og undanfarin ár, annríkisár í Kvennaathvarfinu. Þar dvöldu samtals 174 gestir, konur og börn sem ekki gátu búið heima hjá sér vegna ofbeldis að því er fram kemur í tilkynningu frá Kvennaathvarfinu. Þar segir ennfremur að samþykkt laga um heimildir lögreglu til að fjarlægja ofbeldismann af heimili sínu, austurríska leiðin svokallaða, breytti engu þar um. Þó hefur lagaheimildin vafalaust skipt sköpum í lífi einnar konu, en heimildin hefur einu sinni verið nýtt og staðfest af dómara á þessum 9 mánuðum sem liðinir eru frá samþykkt hennar. Konur og börn dvöldu í athvarfinu frá einum degi upp í tæpa fimm mánuði. Konur að meðaltali í 15 daga en börn í 21 dag. Erfiður leigumarkaður og þær staðreyndir að ofbeldismaðurinn hefur yfirtekið heimilið og að ofbeldinu er síður en svo lokið þegar konan yfirgefur ofbeldismanninn gerir það að verkum að dvöl er iðulega lengri en æskilegt er í neyðarathvarfi. Það var því oft þröngt á þingi í athvarfinu og ljóst að núverandi húsnæði er allt of lítið fyrir starfsemina. Einnig leituðu í athvarfið rúmlega 200 konur í ráðgjafar- og stuðningsviðtöl og sjálfshjálparhópa án þess að koma til dvalar. Nýleg rannsókn bendir til að á einu ári séu um 1800 konur á Íslandi beittar líkamlegu og /eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu maka eða fyrrverandi maka. Í ljósi þess eru konurnar sem leita í Kvennaathvarfið lítill hluti brotaþola og segir því aðsókn í athvarfið líklega lítið um tíðni ofbeldis í samfélaginu. Konurnar í athvarfinu komu frá samtals 36 löndum en flestar eru íslenskar. Þó er um helmingur dvalarkvenna af erlendum uppruna. Ofbeldismennirnir eru í flestum tilfellum núverandi eða fyrrverandi eigin- eða sambýlismenn kvennanna og því feður eða stjúpfeður barnanna. Þeir voru á aldrinum 16-85 ára þegar konan kom í athvarfið en meðalaldur karlanna er 44 ár.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira