Innlent

Gróðurhúsalömpum og gasgrilli stolið

Brotist var inn í gróðurhús í Laugarási aðfaranótt síðastliðins fimmtudags og þaðan stolið sex gróðurhúsalömpum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. Maður sem var þar á ferð um kl. 03:30 sá til tveggja einstaklinga sem voru á ferð í bifreið við gróðurhúsið. Fljótlega eftir að innbrotið uppgötvaðist féll grunur á konu og karl.

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók parið síðdegis á föstudag. Við yfirheyrslu neitaði fólkið sök. Unnið er að rannsókn málsins og biður lögregla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir ljósgrárrar Toyota Corolla árgerð 1995 í eða við Laugarás á fyrrgreindum tíma að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010.

Nýlegu gasgrilli, Weber Genesis, var stolið frá sumarbústað í Tjarnarhólslaut sem er í landi Vaðness í Grímsnesi. Grillið er stórt, tveggja til þriggja manna tak. Þjófnaður átti sér stað á tímabilinu 12. til 25. febrúar síðastliðinn. Þeir sem veitt geta upplýsingar um þjófnaðinn eru beðnir að hafa samband í síma lögreglu 480 1010.

Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Engin alvarleg meiðsl hlutust í þessum óhöppum.

Sex ökutæki voru tekin úr umferð vegna vanrækslu á ábyrgðartryggingu. Sekt við því broti er allt að þrjátíu þúsund krónur. Sjö ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur og tveir fyrir ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×