Innlent

Höfðabakki opnaður að nýju

Þriggja bíla árekstur varð á Höfðabakka við Elliðaárbrúnna nú á fjórða tímanum. Gatan var lokuð um tíma. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu var tækjabíll sendur á vettvang því ekki var hægt að opna einn bílinn sem í árekstrinum lenti. Ökumaður þess bíls var fluttur á slysadeild en meiðsli hans munu ekki vera mjög alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×