Innlent

Eldur borinn að húsi í Hafnarfirði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eldur var borinn að húsvegg á Hverfisgötu í Hafnarfirði nú síðdegis. Slökkviliðsmenn voru strax sendir á staðinn þegar tilkynnt var um eldinn, en þegar þeir voru komnir á staðinn höfðu íbúar í nágrenninu strax brugðist við og slökkt eldinn.

Nokkur eldur hafði blossað upp. Hann barst ekki inn í kjallaraíbúð hússins, en skemmdir eru á húsinu að utan. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu virðist sem olía hafi verið borin að húsinu áður en kveikt var í. Þá eru upplýsingar um að Ouitlaws merki hafi verið skrifað á rúðu í einum glugganum á íbúðinni. 

Þá var slökkviliðið kallað að Laugardalslaug í dag. Heitur pottur hafði lekið í rými sem er undir heita pottinum, þar sem er líkamsræktaraðstaða. Vatnsmagnið sem lak var töluvert og því þurft aðstoð slökkviliðsins við að hreinsa það upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×