Ólafur Ragnar: Enginn fjárhagslegur ávinningur af því að halda áfram Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. febrúar 2012 20:38 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók á móti undirskriftarsöfnurum í dag. mynd/ anton.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist engan persónulegan, fjárhagslegan ávinning hafa af því að halda áfram sem forseti. Hann hafi verið einlægur þegar hann sagði í nýársávarpi sínu að hann hygðist láta af embætti forseta eftir þetta kjörtímabil. Ólafur Ragnar sagði að ef hann léti af embætti forseta í sumar yrðu eftirlaun hans álíka mikil og ef hann héldi áfram í embætti. Að því leyti til yrði það fullkomin sjálfboðavinna af hans hálfu ef hann héldi áfram sem forseti. „Þess vegna væri ég einfaldlega staddur þannig að það væri enginn persónulegur fjárhagslegur ávinningur af því fyrir mig að vera áfram nema siður væri. Ég hefði miklu meira frelsi með því að hætta, ég hefði jafn mikið í eftirlaun eins og ég hefði í embættinu og ef ég yrði áfram þá yrði það um fullkomna sjálfboðaliðsvinnu að ræða," sagði forsetinn og bætti við að hann vissi að allir þeir sem hugleiddu stöðu sína þegar þeir væru að ljúka sínu ævistarfi myndu skilja slíkan þankagang og slíka hugsun. „Þannig að það er alveg sama hvernig málið er skoðað. Það liggur allt þannig að það það var mín einlæga ósk og allra í fjölskyldunni að þjóðin myndi finna sér aðra vegferð á þessum tímamótum en að ég yrði áfram í þessu embætti," sagði Ólafur Ragnar Grímsson um þá ákvörðun sem hann tilkynnti á nýársdag. Eins og fram kom fyrr í dag hefur hann ákveðið að taka sér nokkurra daga frest til að taka ákvörðun eftir að rúmlega 30 þúsund manns hafa skorað á hann að halda áfram í embætti.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira