Innlent

Meirihluti nefndarinnar vill vísa ályktun Bjarna frá

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur agreitt þingsályktun um afturköllun málshöfðunar á hendur Gei Haarde. Meirihluti nefndarinnar leggur til að ályktuninni sem lögð var fram af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, verði vísað frá. Þetta staðfestir Valgerður Bjarnadóttir formaður nefndarinnar og þingkona Samfylkingarinanr í samtali við fréttastofu. Nefndin kom saman til fundar í morgun klukkan níu.

Fundi var síðan frestað til klukkan ellefu og nú rétt fyrir hádegið afgreiddu nefndarmenn málið. Málið verður nú aftur tekið upp á Alþingi og væntanlega mun þingheimur allur greiða atkvæði um tillögu nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×