Lögreglumenn styðja frásögn meints höfuðpaurs Erla Hlynsdóttir skrifar 28. febrúar 2012 19:03
Stærsta fíkniefnamál síðasta árs, Straumsvíkurmálið svonefnda, var tekið til aðalmeðferðar í dag. Þar báru tveir lögreglumenn að ekkert benti til þess að annar af meintum höfuðpaurum hefði vitað nokkuð af fíkniefnunum. Alls eru sex ákærðir í málinu og komu þau öll fyrir dóm í dag. Um er að ræða smygl um borð í skipi sem kom frá Rotterdam og til Straumsvíkur í haust. Lagði lögreglan hald á tæp tíu kíló af amfetamíni, um átta þúsund e-töflur og mikið magn stera. Þar eru sex ákærðir. Geir Hlöðver Ericsson er ásamt Sævari Sverrissyni ákærður fyrir að skipuleggja þennan innflutning. Þá greinir verulega á í vitnisburði sínum og benda hvor á annan. Sævar hefur frá upphafi neitað því að hafa vitað að um sterk fíkniefni hafi verið að ræða, einungis hafi verið rætt um að pakkarnir innihéldu stera. Fyrir dóm í dag mættu tveir lögreglumenn sem stjórnuðu rannsókninni. Voru þeir báðir spurðir hvort eitthvað í gögnum málsins benti til þess að Sævar hefði vitað af sterku fíkniefnunum og sögðu þeir svo ekki vera. Hann hefði frá upphafi verið hreinskilin og samvinnuþýður og ekkert í umfangsmiklum hlerunum benti til þess að hann hafi vitað af fíkniefnunum. Sævar er í gæsluvarðhaldi sem var framlengt í morgun á þeim grundvelli að aðalmeðferð væri að ljúka. Meðal þess sem liggur til grundvallar ákæru eru hleranir á síma og heimili Geirs Hlöðvers til sex mánaða. Ákveðið var í morgun að heimila sakborningum að hlusta á allar upptökur er að þeim lúta. „Ég tel að þetta hafi verið skynsamleg og góð ákvörðun hjá héraðsdómi," segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, verjandi Geirs Hlöðvers. Þetta leiðir til þess að málið frestast um ótilgreindan tíma, en til stóð að aðalmeðferð myndi ljúka í vikunni. Verjandi Sævars segist í samtali við fréttastofu hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira