Innlent

Undrandi á að engir kjarasamningar séu til fyrir smábátasjómenn

Fundur smábátasjómanna lýsir yfir undrun sinni yfir að aldrei hafi tekist að ganga frá kjarasamningi fyrir smábátasjómenn.

Í ályktun fundarins er skorað á alla smábátasjómenn að standa þétt saman og búa til öflugan þrýsithóp til að tryggt verði að smábátasjómenn njóti þeirra lágmarksmannréttinda að hafa kjarasamning eins og aðrir starfshópar.

Umræddir sjómenn róa á bátum í eigu annarra og eru því í vinnu hjá öðrum, líkt og aðrir sjómenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×