Innlent

Bensínþjófar á ferð í Breiðholti

Lögreglu var tilkynnt á þriðja tímanum í nótt, um að ungir menn væru að stela bensíni af bílum í Breiðholti.

Þeir voru hrofnir þegar lögregla kom á vettvang og er ekki vitað af hversu mörgum bílum, eða hversu miklu þeir stálu og skýrist það ekki fyrr en með morgninum.

Að sögn lögreglu færist bensínþjófnaður jafnan í vöxt í kjölfar mikilla verðhækkana á bensíni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×