Innlent

Ein hópuppsögn tilkynnt - 20 missa vinnuna í byggingariðnaði

Iðnaðarmenn að störfum.
Iðnaðarmenn að störfum. Mynd Vilhelm
Tuttugu manns verður sagt upp núna um mánaðamótin hjá fyrirtæki í byggingariðnaði, en það er eina fyrirtækið sem tilkynnt hefur um hópuppsögn til Vinnumálastofnunar fyrir þessi mánaðamót.

Hjá stofnuninni fengust þær upplýsingar að viðkomandi fyrirtæki væri að segja upp nánast öllu sínu starfsfólki, það væri hins vegar gert í varúðarskyni og vonast forsvarsmaður þess til að hann geti endurráðið flesta sína starfsmenn þegar verkefnum fjölgar.

Jafn mörgum starfsmönnum var sagt upp hjá Orkuveitu Reykjavíkur í gær, eða 20 starfsmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×