Segja málefnalega ástæðu fyrir því að fella niður málið Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. febrúar 2012 17:13 Birgir Ármannsson mælti fyrir áliti sjálfstæðismanna á þingfundi í dag.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þau Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal telja alveg ljóst að Alþingi geti haft frumkvæði að því að fella niður ákæru gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og að margar málefnalegar ástæður séu fyrir því að gera það. Þetta kemur fram í áliti þeirra sem Birgir gerði grein fyrir á þingfundi í dag. „Vandséð er hvers vegna þingmenn sem ekki töldu tilefni til að ákæra Geir H. Haarde í september 2010 ættu að telja tilefni til ákæru nú. Ekkert hefur komið fram í málinu frá þeim tíma sem eykur líkur á sakfellingu. Á hinn bóginn hefur komið fram að ýmsir þeirra sem studdu ákærutillöguna á sínum tíma telja forsendur breyttar og meta málið með öðrum hætti nú," segir í áliti þeirra. Þau Birgir og Ólöf segja líka að frá september 2010, þegar tillaga um að ákæra Geir var samþykkt, hafi komið fram mun meiri upplýsingar um hina alþjóðlegu fjármálakreppu sem hófst á sumar- og haustmánuðum 2008 og afleiðingar hennar bæði hér á landi og erlendis. Mat á því hvað íslensk stjórnvöld áttu að gera til að bregðast við fjármálakreppunni og hvað þau gátu hugsanlega gert á þeim tíma geti því verið annað í dag en haustið 2010. Slíkt getur haft áhrif á mat manna á því hvort líklegt sé að einstakir liðir sem eftir standa í ákærunni gegn Geir H. Haarde séu líklegir til að leiða til sakfellingar. Ákvörðun um að ákæra hljóti alltaf að byggjast á mati á því að meiri líkur en minni séu á því að ákæran leiði til sakfellingar.
Mest lesið Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Lögreglan leitar manns Innlent Sáttur við að staða hans sé auglýst Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Innlent Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Innlent Fleiri fréttir Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Sjá meira