Harmleikur á Hótel Frón: Móðirin er sakhæf 24. janúar 2012 10:23 Við þingfestingu málsins þann 10. nóvember síðastliðinn. Hún neitaði sök. mynd/vilhelm
Agné Krataviciuté, litháísk kona, sem ákærð hefur verið fyrir að skilja nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í sumar, er sakhæf. Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar mál hennar var tekið fyrir. Konan var metin sakhæf eftir að hafa verið látin sæta geðrannsókn en við þingfestingu málsins lagði verjandi hennar fram kröfu um yfirmat á sakhæfi hennar og að dómskvaddur matsmaður yrði kallaður til. Við fyrirtöku málsins í morgun kom fram að konan væri sakhæf. Ríkissaksóknari hefur ákært konuna fyrir manndráp, með því að hafa veitt nýfæddum syni sínum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. Atvikið átti sér stað laugardaginn 2. júlí í fyrra, á baðherbergi í herbergi númer 319 á vinnustað konunnar, Hótel Fróni á Laugavegi. Í ákæru segir að þar hafi hún fætt fullburða lifandi sveinbarn sem síðan fannst dáið í ruslageymslu í nágrenni hótelsins. Við þingfestingu málsins sagðist konan ekki vera sammála því sem kæmi fram í ákærunni. „Ég er ekki sammála þessu. Ég drap ekki barnið" sagði hún. Verjandi Agné fór fram á að þinghaldið yrði lokað, þingfestinguna. Dómari úrskurðaði stuttu síðar að þinghaldið skyldi vera opið og staðfesti Hæstiréttur þann dóm. Aðalmeðferð málsins fer fram á næstu vikum.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira