Innlent

Harpa vinnur til verðlauna

Mynd/Valli
Harpa hefur verið valið besta listviðburðarhúsið í samkeppni sem haldin er af alþjóðlegu ferðatímariti, Travel & Leisure, en þar velur virtur hópur dómara bestu byggingar, söfn, veitingastaði, almenningsrými og hótel í heimi. Í umsögn dómnefndar kemur fram að einstakt samstarf arkitekta við listamanninn Ólaf Elíasson skapi byggingu sem líki eftir risavaxinni kviksjá að kvöldlagi sem bæði varpi fram ljósum og endurspegli þeim úr umhverfi sínu með stórfenglegum hætti.

Dómurum finnst Harpa minna sig á vatn í sínu æðsta formi - litadýrð glersins endurspegli bæði ský og ís.

Þá er þess getið að Harpa hefur einnig verið tilnefnd sem ein af fimm menningarbyggingum ársins hjá arkiktektavefsíðunni ArchDaily og auk þessa hefur Harpa verið tilnefnd til hinna virtu bresku Civic Trust Awards verðlauna. Úrslit úr þessum samkeppnum liggja fyrir í byrjun mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×