Innlent

Enn óljóst um fyrirætlanir Ólafs

Ólafur á Bessastöðum.
Ólafur á Bessastöðum. Mynd/Anton
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur tekið við undirskriftum rúmlega 30 þúsund manna þar sem hann er hvattur til að bjóða sig fram að nýju.

Guðni Ágústsson fór fyrir hópnum og hélt tölu þar sem hann hvatti Ólaf Ragnar til þess að gefa kost á sér áfram. Ólafur Ragnar þakkaði hlý orð í sinn garð en sagði að hann hefði greint frá fyrirætlunum sínum í nýársávarpi þann 1. janúar. Sagðist hann telja að hann hefði greint frá fyrirætlunum sínum þá eins skýrt og hægt hafi verið.

Að þessu sögðu tilkynnti Ólafur að hann ætlaði að fara á nýjan leik í gegnum þessa ákvörðun sína. Hann bauð forsvarsmönnum söfnunarinnar í kaffi og ætlar að ræða við fjölmiðla að þeim fundi loknum. Það er því enn óljóst hvað forsetinn ætlar sér að gera, en skýrist mögulega eftir nokkrar mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×