Geir Jón segist ekki vanur að skrökva Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. febrúar 2012 19:40 „
Ég var nú bara að svara spurningu sem að mér var beint. Ég er nú vanur því að skrökva ekki og ég svara því sem að mér er rétt," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ummæli hans um að einstakir þingmenn hafi verið í sambandi við mótmælendur í Búsáhaldabyltingunni sem varð aðdragandi þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar lagði upp laupana hafa verið harðlega gagnrýnd. Meðal annars hefur Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og Álfheiður Ingadóttir, þingmaður flokksins, gagnrýnt þau. Á það hefur verið bent að Geir Jón sé í framboði til annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins. „Það er óheppilegt að blanda þessu saman - kannski eru nú viðbrögðin þess vegna en ég verð bara að láta gott af mér leiða og hef ekki vanið mig á það að skrökva upp á fólk eða vera með dylgjur," sagði Geir Jón í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Geir Jón segist hafa verið að lýsa mótmælum eins og þau voru þriðjudaginn 20. janúar 2009 og 21,. janúar 2009. „Það voru bara þessir tveir dagar sem ég var að segja frá. Síðan eru menn búnir að vera að tala um að ég hafi verið að tala um alla búsáhaldarbyltinguna. Það var ekki það sem ég var að tala um," sagði Geir Jón. Geir Jón er að taka saman skýrslu um atburðarásina í mótmælunum þegar Búsáhaldabyltingin varð. Hann segir skýrsluna gerða að beiðni lögreglustjóra. Skýrsla Geirs Jóns er byggð á upplýsingum frá lögreglumönnum sem upplifðu mótmælin og voru á vettvangi, auk frásagna frá þingmönnum og öðrum sem voru á staðnum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira