Innlent

Óvenjumiklar annir í sjúkraflutningum á Suðurlandi

Óvenjumiklar annir voru hjá sjúkraflutningamönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í gær, þegar þeir sinntu 21 útkalli, þar af sex bráðaútköllum.

Fjórir sjúkrabílar í Árnessýslu voru allir á þönum í tvær klukkustundir í gær og vakthafandi sjúkraflutningamenn í Rangárþingi voru líka uppteknir í útköllum.

Mest voru þetta útköll vegna veikinda, en all nokkur voru vegna minniháttar slysa. Meðal annars fótbrotnaði erlendur ferðamaður á göngustíg við Gullfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×