Sefar nagandi sjálfsefann 28. janúar 2011 13:30 Dimmalimm Þótt Karl Jóhann Jónsson líti fyrst og fremst á sig sem portrettmálara, hlaut hann ríkulegar vöggugjafir á öðrum listasviðum því hann er einnig afburða texta- og söngmaður, syngur með Karlakór Reykjavíkur og hefur lokið 5. stigi í söng. fréttablaðið/gva „
Verðlaunin vekja mér fyrst og fremst löngun til að gera betur og gott að uppskera viðurkenningu fyrir að hafa gert vel. Þá auka þau einnig sjálfstraustið því nagandi sjálfsefi fylgir myndlistarmönnum,“ grínast myndlistarmaðurinn Karl Jóhann Jónsson, sem á sunnudaginn hlaut íslensku myndskreytiverðlaunin Dimmalimm fyrir bók sína Sófus og svínið, sem gefin er út af Námsgagnastofnun. „Ég er sérstaklega ánægður með að lítil lestrarbók, sem líka er tilraun til að vekja áhuga yngstu nemendanna á myndlist, skuli vinna til verðlauna,“ segir Karl Jóhann sem einnig er textahöfundur Sófusar og svínsins. Í bókinni málar söguhetjan Sófus fyndin tilbrigði við mörg af frægustu portettum listasögunnar, þar sem svínið er hans aðalfyrirsæta. „Í upphafi ætlaði ég að gera sjálfsævilega sögu því ég er manískur portrettáhugamaður. Listmálarar voru flestir með lærling í eftirdragi í gamla daga og af því spratt sú hugmynd að skapa listmálara með svín í læri. Seinna átti bókin að fjalla um frægar sögupersónur í barnabókum, þar sem svínið brá sér í gervi Rauðhettu, Emils í Kattholti og fleiri, en á endanum tók hún á sig mynd skemmtisögunnar, sem einnig má nota í lestrarkennslu, og gleðst ég einkum yfir að hún komi bæði inn á lestur og myndlist,“ segir Karl Jóhann sem kennir einmitt myndlist og lestur í Hörðuvallaskóla í Kópavogi. „Ég hef enn látið lítið reyna á bókina í myndmenntatímum, en krökkum þykir hún skemmtileg aflestrar. Ég tel mig þó ekki enn meðal rithöfunda, en vissulega búa með mér margar nýjar hugmyndir, mislangt á veg komnar,“ segir Karl Jóhann sem sjálfur var síteiknandi sem barn, en hann útskrifaðist af málarabraut Myndlista- og handíðaskólans 1993. „Það var aldrei spurning að ég færi þessa braut, en mig langaði líka alltaf til að kenna. Eftir útskriftina fékkst ég aðallega við málverkið en hætti að teikna og myndskreyta. Síðan varð ég svolítið leiður á myndlistinni og fór að rifja upp af hverju mér þótti svo gaman að henni áður, en það var vegna þess að mér fannst svo gaman að teikna eitthvað með húmor. Því fæddist hún smám saman aftur, þessi þörf til að teikna eins og ég gerði sem barn og unglingur upp úr eigin ímyndunarafli,“ segir Karl Jóhann sem einnig kennir portrettmálun við Myndlistaskólann í Reykjavík. „Þar fær maður rjómann af fólki með brennandi áhuga á myndlist, á meðan einhver hluti barna í grunnskóla spyr hvers vegna þurfi að mæta í myndlist. Annars er engin leið að sjá á teikningum barna hvort þau séu efni í myndlistarmenn og ég man sjálfur eftir félögum í grunnskóla sem voru eins og hinir í teikningu, en orðnir mjög fínir myndlistarmenn í dag. Maður getur því frekar dregið ályktun ef maður sér áhuga, því sá sem hefur gaman af því að teikna eykur líkurnar á að verða verulega góður seinna.“ thordis@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Sonur Rögnu og Árna fæddur Lífið Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Fleiri fréttir „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Sjá meira