Innlent

Hálkublettir víða á fjallvegum

Spáð er éljum á fjallvegum suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt, en slydduéljum á láglendi. Undir morgun er hætt við ísingu á vegum, einkum á Suðurlandsundirlendinu, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. En einnig í Borgarfirði, Dölum, við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum.

Hálkublettir eru víða á fjallvegum. Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum á Austurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×