Innlent

Alma ekki með stýrisblað

Flutningaskipið Alma.
Flutningaskipið Alma.
Kafarar frá Fáskrúðsfirði athuguðu flutningaskipið Ölmu í dag og í ljós kom að stýrisblað skipsins vantar með öllu. Það hefur að öllum líkindum dottið af þegar skipið var að sigla burt frá Hornafjarðarhöfn í fyrri nótt.

Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er umboðsaðili Ölmu hér á landi, segir það ráðist eftir helgi hvert framhaldið verður. Hvort skipið verður dregið í flotkví erlendis eða hvort farmurinn verði færður í annað skip og fluttur þannig út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×