Myndirnar viðbót við söguþráðinn 7. nóvember 2011 20:00 Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
Halla getur vel hugsað sér að gera fleiri bækur þar sem hún sameinar textagerð og myndskreytingar. Agnar Smári: Tilþrif í tónlistarskólanum er fyrsta bók myndlistarnemans Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur sem kom út á dögunum. Myndskreytingarnar og textinn eru eftir hana sjálfa en bókin er gefin út af Bókaforlaginu Sölku. Myndirnar vekja strax athygli lesandans enda eru þær aðalatriðið að sögn Höllu. „Myndirnar eiga að mínu mati ekki eingöngu að endurtaka söguþráðinn heldur að bæta við hann. Það finnst mér vera hlutverk myndskreytinga í barnabókum. Ég reyni auk þess að glæða þær húmor sem ég vona að bæði börn og fullorðnir geti haft gaman af." Halla byrjaði að vinna í bókinni þegar hún sat námskeið í Myndlistarskólanum fyrir þremur árum. „Það sem ég lagði fyrst upp með var að gera bók sem ég gæti myndskreytt með tónlistarkennurum sem líktust hljóðfærum sínum en þeir eru allnokkrir í bókinni. Það tengist söguþræðinum hins vegar lítið sem ekkert og er bara hugsað til skemmtunar," segir Halla. Hún segir bókina fjalla um Agnar Smára sem er óvenju lágvaxinn sjö ára strákur. „Uppáhaldsiðja hans er að semja tónlist og það fer ekki framhjá neinum. Hann notar hins vegar til þess mjög frumstæðar aðferðir og sagan segir frá deginum örlagaríka þegar mamma hans ákveður að senda hann í tónlistarskóla til að læra alvöru tónlist. Í skólanum leynist ýmislegt á bak við luktar dyr og Agnar Smári lendir, ásamt besta vini sínum, í miklum hremmingum. Hann á í basli með að ráða við hljóðfærin og heimsóknin í tónlistarskólann verður hálfgerð martröð. Undir lok bókarinnar nær hann þó óvæntri stjórn á aðstæðum," upplýsir Halla og getur þess að bókin sé ætluð börnum á aldrinum fjögurra til níu ára og foreldrum þeirra. Halla lýkur myndlistarnámi við Listaháskóla Íslands í vor og þó að það hafi ekki verið ætlun hennar í fyrstu segir hún vel koma til greina að skrifa og myndskreyta fleiri bækur. „Eftir að hafa farið í gegnum þetta mikla ferli og séð afraksturinn gæti ég vel hugsað mér það en hef þó ekki gert það upp við mig hvort ég geri fleiri bækur um Agnar Smára eða eitthvað annað. Ég get að minnsta kosti vel hugsað mér að blanda skrifum og myndlist frekar saman enda liggur hugurinn bæði í skapandi skrif í Háskólanum og frekara myndlistarnám erlendis. -ve
Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira