Innlent

Björgunarskipið Jón Oddgeir er óskemmt

Björgunarskipið Jón Oddgeir, sem slitnaði frá bryggju í fárviðri í Njarðvíkurhöfn í gærmorgun og rak upp í grýtta fjöru, virðist ekkert haf skemmst.

Það náðist á flot á flóði undir kvöld og skoðaði kafari þá botn og skrúfur skipsins en fann ekki skemmdir og einskis leka varð vart.

Það var hafnsögubáturinn Auðunn, sem dró Jón Oddgeir á flot, en skipið er eitt af 14 björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×