Innlent

Vankaður ökumaður í töluverðum vandræðum

Liðlega tvítugur karlmaður, sem var einn á ferð í bíl sínum um tvö leitið í nótt, vankaðist svo alvarlega af höfuðhöggi, þegar bíll hans hafnaði úti í skurði austur í Flóa, að hann gat ekki gefið lögreglunni á Selfossi neina haldgóða lýsingu á staðsetningu.

Lögregla hóf þegar leit að manninum og kallaði út björgunarsveit, en upp úr  klukkan þrjú gerði hann vart við sig á bænum Sölvholti í Gaulverjabæ, víðs fjarri staðnum, sem hann taldi sig vera á. 

Hann var þá blautur og hrakinn, þar sem bíllinn hafði hafnað ofan í skurði, fullum af vatni, auk þess sem maðurinn hafði þrautir í höfði vegna höfuðhöggs. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi til aðhlynningar og síðan á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×