Leitar út fyrir landssteinana 14. febrúar 2011 14:00 Sonja Bent segir nauðsynlegt fyrir íslenska hönnuði að leita út fyrir landssteinana vilji þeir hafa lifibrauð sitt af hönnun.
Sonja Bent var í hópi þeirra íslensku hönnuða sem sóttu sölusýninguna CPH Vision sem fór fram í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Sonja segir sýningar sem þessa geta skapað góð tækifæri fyrir íslenska hönnuði. Þetta er í annað sinn sem Sonja tekur þátt í sölusýningunni sem haldin er í tengslum við tískuvikuna í Kaupmannahöfn. Hana sækja kaupendur sem koma víða að til að skoða hvað Norrænir hönnuðir hafa upp á að bjóða. Hönnun Sonju vakti nokkra athygli og hefur pöntunum rignt inn eftir sýninguna. „Ég fékk enga eiginlega pöntun á sýningunni sjálfri en þegar ég kom aftur heim var innhólfið mitt fullt af pöntunum," segir Sonja. Hún sótti einnig tískuvikuna í París sem fram fór í janúar og gerði tvo kaupsamninga þar. Á meðal þeirra sem sýndu hönnun Sonju áhuga var franska tískuverslunin Collette sem selur hönnun á borð við Gareth Pugh, Fendi, Rodarte og Valentino. „Þeir sögðust hafa verið að fylgjast með mér í svolítinn tíma, fengu hjá mér bæklinga og sögðust ætla að hafa samband þegar þeir höfðu farið yfir málin. Það að Collette hafi sýnt mér áhuga er mikið hrós í sjálfu sér, alveg óháð því hvernig málið fer," segir Sonja glaðlega. Sonja segir nauðsynlegt fyrir íslenska hönnuði að selja vörur sínar úr landi þar sem markaðurinn hér þykir of lítill til að hægt sé að lifa á hönnun. „Það gengur ekki að selja bara hér heima ætli maður sér að lifa á þessu. Vilji maður stækka og halda áfram að draga andann verður maður að leita út fyrir landssteinana. Maður getur lifað nokkur lengi á einni góðri pöntun, sérstaklega þegar gengið er svona gott," segir hún að lokum. -sm
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira