Gagnrýna díoxínmælingar vegna sorpbrennslu í Funa 23. nóvember 2011 10:15 Steingrímur Jónsson felldi bústofn sinn eftir að Funamálið kom upp. Hann og fleiri bíða svara frá Matvælastofnun um framtíð búreksturs á jörðinni. mynd/halldór sveinbjörnsson
Bæjarráð Ísafjarðar gerir alvarlegar athugasemdir við niðurstöður Umhverfisstofnunar (UMST) og Matvælastofnunar (MAST) hvað varðar díoxínmælingar á jarðvegi í Engidal í Skutulsfirði. Ísfirðingar segja ósamræmi í niðurstöðum sem þurfi að skýra. Stofnanirnar segja að mælingar þeirra lúti ekki að sömu atriðum og því sé ekki um ósamræmi að ræða. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, skrifaði stofnununum tveimur í október þar sem segir að Ísafjarðarbær og íbúar í Skutulsfirði, og þó einkum þeir er búa og/eða starfa í Engidal, eigi „skýlausan rétt til þess, að þessar tvær opinberu stofnanir samræmi niðurstöður sínar hvað þetta mál varðar. Við svona misvísandi niðurstöðurverður ekki búið, niðurstöður sem hefta allt atvinnulíf á þessu tiltekna landsvæði, ef til vill að ástæðulausu.“ Í stuttu máli var það niðurstaða mælinga UMST að magn díoxíns kalli ekki á takmarkanir á nýtingu eða skapi hættu fyrir almenning og lífríki. Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að rækta í jarðvegi, tína ber eða nýta aðrar náttúruafurðir, eins og það var orðað. Í svari UMST til sveitarfélagsins segir að þessi niðurstaða snerti ekki á fóðuröflun fyrir dýr ætluð til manneldis, enda sé það í verkahring Matvælastofnunar að skera úr um þetta atriði. Matvælastofnun komst að þeirri niðurstöðu að jarðvegssýnataka hafi ekki verið fullnægjandi og því er bann á nýtingu landsins til fóðuröflunar fyrir dýr til manneldis í gildi. Í svari MAST til sveitarfélagsins segir að stofnunin telji „að sýnataka Umhverfisstofnunar hafi ekki leitt í ljós með óyggjandi hætti, hvort mengun sé á yfirborði lands í Engidal og geti borist þaðan í búfé og í afurðir“. Spurður um ósamræmið sem bæjarstjórinn skrifar um segir Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður hjá MAST, að stofnunin leggi ekki mat á hversu vel var staðið að sýnatöku Umhverfisstofnunar enda markmið þeirrar sýnatöku ekki það sama og Matvælastofnunar. „Matvælastofnun telur mjög mikilvægt að fá úr því skorið hvort enn sé díoxínmengun í ryki á yfirborði jarðar og á gróðri sem svo berst í búfé og í afurðir. Strax í mars/apríl var lagt til og ákveðið að gera beitartilraun til að ganga úr skugga um þetta. Tilrauninni er nú lokið og er nú beðið eftir niðurstöðum úr mælingum og þá verður vonandi unnt að taka ákvörðun um nýtingu beitilands, fóðuröflun og nýtingu búfjárafurða og þar með ljúka málinu,“ segir í svarbréfi Sigurðar við fyrirspurn Fréttablaðsins.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira