Segir breytingar ógna fjárhagslegri stöðu Sjálfstæðisflokksins 13. júní 2011 12:32 Björn Valur Gíslason. Mynd/GVA
Allar breytingar á kvótakerfinu koma sér illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ógnar fjárhagslegri stöðu flokksins, að mati þingmanns VG. Hann segir að það sé eins og að slíta pólitíska hjartað úr Framsóknarflokknum að breyta kvótakerfinu og að það hafi þurft konu að vestan til að berja í gegn breytingar á kvótakerfinu, en þar á þingmaðurinn við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, á heimasíðu hans. Minna kvótafrumvarp Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, varð að lögum á laugardag en hart hefur verið tekist á um málið síðustu daga. Björn Valur segir frumvarpið fela í sér afgerandi stefnubreytingu í viðamiklum málum auk sanngjarnra leiðréttinga á auðsjánalegu óréttlæti. Hann segir að það hafi komið glöggt fram í atkvæðagreiðslum á laugardaginn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sitt fjárhagslega bakland í sjávarútveginum. „Þeir vörðu óbreytt kerfi, lögðust gegn öllum lagfæringum og ítrekuðu hótanir sínar um að standa berjast af hörku gegn öllum breytingum á lögum um stjórn fiskveiða." Þá segir Björn Valur: „Seinni tíma saga Framsóknarflokksins er svo samofin kvótakerfinu að jafnast nánast á við að slíta pólitíska hjartað úr flokknum að breyta því. Samfylkingin hafi ekki erindi sem erfiði í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn á þessum vettvangi. Það var því ekki fyrr en Vinstri græn komust til valda sem hreyfing kom á málin. En það þurfti meira til. Það þurfti konu að vestan til að berja þær breytingar í gegnum þingið." Skrif þingmannsins er hægt að lesa hér.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Sjá meira