Baltasar og Ingvar í sérflokki 17. febrúar 2011 07:00 Baltasar hefur hlotið sjö Eddur.
Ingvar E. Sigurðsson er sigursælasti leikarinn á Edduverðlaunahátíðinni en hann hefur fengið fimm Eddur fyrir leik sinn í íslenskum kvikmyndum eða stuttmyndum. Kristbjörg Kjeld hefur oftast hlotið Edduna af íslenskum leikkonum. „Verðlaunin skipta ekki miklu máli upp á leiklistina að gera, ég verð hvorki verri né betri leikari fyrir vikið," segir Ingvar E. Sigurðsson. Hann er sigursælasti leikari Edduverðlaunahátíðarinnar, hefur hlotið þau fimm sinnum fyrir leik og einu sinni fyrir handrit. Ingvar gæti bætt tveimur styttum í safnið á laugardaginn því hann er tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Kóngavegi og besta handrit ásamt Vesturportshópnum fyrir Brim. Lausleg könnun Fréttablaðsins leiðir jafnframt í ljós að þegar Ingvar hefur verið tilnefndur hefur hann alltaf farið með styttuna heim. Hann hlaut meira að segja verðlaunin fyrir stuttmyndina Slurpinn & Co á fyrstu Edduverðlaunahátíðinni árið 1999.Ingvar segist ekki vera mikill verðlaunakarl og hann fyllist jafnframt kvíða þegar hann er tilnefndur. „Það er mest gaman á þessum Edduverðlaunum þegar allt er yfirstaðið því þá eru allir að fagna í góðu partístuði." Ingvar er reyndar ekki sigursælasti kvikmyndagerðarmaðurinn því sá heiður hlotnast Baltasar Kormáki, sem hefur hlotið hana sjö sinnum. Fast á hæla honum kemur Ragnar Bragason með sex Eddur. Dagur Kári getur reyndar skotist fram úr Ragnari ef Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían verður honum hliðholl þetta árið. Dagur hefur þegar hlotið fimm Eddur og er tilnefndur til fjögurra í ár; tveggja fyrir tónlist Slowblow í kvikmyndunum Brim og The Good Heart og svo fyrir leikstjórn og handrit. Karlarnir hafa haft þá tilhneigingu að deila ekki Eddunum jafnt á milli sín heldur hafa þær safnast á hendur örfárra manna. Þegar konurnar eru annars vegar er hins vegar annað uppi á teningnum því aðeins ein leikkona hefur hlotið Edduna oftar en tvisvar, en það er Kristbjörg Kjeld. Hún hefur unnið styttuna góðu fyrir Kaldaljós, Mávahlátur og Mömmu Gógó auk þess sem hún hefur verið tilnefnd fyrir bæði Fíaskó og Hafið. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira