Umslög Bobbys seljast vel 22. september 2011 12:00 Bobby Breiðholt hannar umslagið við nýjustu plötu Hjálma, Óróa. Fréttablaðið/Vilhelm
Bobby Breiðholt, eða Björn Þór Björnsson, hefur fengið það verkefni að hanna umslag væntanlegrar plötu Hjálma, Óróa, sem kemur út í október. Flestar plötur sem Bobby hannar umslögin við hafa náð miklum vinsældum og svo virðist sem allt sem hann snerti verði að gulli. „Það er nú aðallega verkefni tónlistarmannsins að gera gullið en það er auðvelt að gera skemmtilega hluti þegar maður er með gott efni í höndunum,“ segir Bobby. Á ferilskrá hans eru umslög utan um plötur með Diskóeyjunni og Blaz Roca sem báðar komu út í fyrra og seldust í um fimm þúsund eintökum hvor. Áður vann hann umslagið við Farewell Good Night"s Sleep með Lay Low sem hefur selst í tæplega níu þúsund eintökum. Fyrr á þessu ári kom svo út önnur plata FM Belfast, Don"t Want To Sleep, sem hefur fengið fínar viðtökur. Þar var Bobby einn af hönnuðunum. Auk Hjálma-plötunnar er Bobby með fleiri járn í eldinum. Hann vinnur aftur með Lay Low að væntanlegri plötu hennar og hannar umslag nýjustu plötu Nolo. Miðað við söguna má búast við að þær báðar eigi eftir að falla vel í kramið á meðal tónlistarunnenda. Hann segir misjafnt hversu lengi hann sé að ljúka við hvert umslag. Ein vika er þó meðaltalið. Spurður hvort hann fái ekki góðan vasapening fyrir þetta segir hann: „Það er mismunandi eftir fjármagninu sem listamennirnir og útgáfurnar vilja setja í þetta.“ En hvað með prósentur af seldum eintökum? „Nei, en þegar Lay Low fór í gull með Farewell Good Night"s Sleep fékk ég alla vega gullplötu,“ segir hann léttur. - fb
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Sjá meira